Stígarnir sem liggja milli lóða í Fjallalind eru margir illa upplýstir. Getur verið mjög bagalegt þegar það er mikill klaki, og maður sér varla fóta sinna skil. Man sérstaklega eftir að hafa lent í vandræðum á milli Fjallalindar 15 og 17. Myndi líka hjálpa myrkfælnum skólabörnum sem ganga þarna á morgnana.
Öryggismál, einkum á veturna þegar klaki og snjór þekja stígana. Stígarnir eru mikið notaðir af skólabörnum.
Þessi hugmynd komst ekki áfram í kosningu í lýðræðisverkefninu Okkar Kópavogur. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndaferlinu og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á heimasíðu verkefnisins www.kopavogur.is/okkarkopavogur
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation