Hljóðmön
Vegna umferðarhávaða er hraunið vestan Reykjanesbrautar lítt fýsilegt til útivistar. Auk þess er umferðarhávaðinn á köflum ærandi á efri-Flötum. Reykjanesbrautinn er á köflum hærri en hraunið vestan megin, sem geri það að verkum að umferðahávaðinn hreinlega magnast milli klettanna, sérstaklega í logni, ekki síst á morgnana og kvöldin þegar hafgolunnar nýtur ekki við.
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation